[20:04]
Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar) :
Því miður, virðulegi forseti, get ég ekki svarað þessari fyrirspurn beint hér og nú með viðhlítandi hætti. Ég hygg að hv. nefnd geti aflað þessara upplýsinga en mér sýnist á töflu sem ég hef hér að það kunni að vera rétt sem kemur fram hjá hv. þm. að sé miðað t.d. annars vegar við 1988 og hins vegar við 1992, þá hafi ráðstöfun bolfiskafla, og ég er einungis að tala um bolfiskinn, ég er ekki að tala um loðnuna eða neitt annað, þá hafi samdrátturinn á Vestfjörðum orðið minni en annars staðar, til að mynda á Suðurlandi og á Vesturlandi svo tekin sé viðmiðun, jafnvel á Norðurlandi vestra. Ástæðan er náttúrlega augljós, held ég, og hún er viðbrögð vestfirskra útgerða sem hætta í stórum stíl að flytja fisk til erlendra hafna en taka fiskinn upp í stærri stíl hér á landi. Það gerir það að verkum að ráðstöfunin á staðnum hefur ekki dregist eins mikið saman og aflaheimildir mældar í þorskígildiskílóum. Það hygg ég að sé stærsta skýringin á því hvað gerst hefur á þessu árabili. Annars væri nú fróðlegt að spyrja mann sem er í salnum en getur ekki tekið til máls undir þessum lið, ekki fyrr en síðar í umræðunni, en það er --- ég ætlaði að fara að segja minn ágæti, gamli skipstjóri, Guðjón Arnar, sem situr hér sem varamaður hv. 3. þm. Vestf. sem er fjarstaddur. Hann hefði getað svarað þessu og gæti gert það með frammíkalli.