[21:31]
Stefán Guðmundsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það er sjálfsagt vonlaust að spyrja einu sinni enn um afkomuna í botnfiskveiðunum, við skulum þá sleppa því í dag, við getum spurt um það síðar. Til þess að fyrirbyggja misskilning, hæstv. sjútvrh., vil ég taka það skýrt fram að ég fagna því ef svo er komið að sjávarútvegurinn er orðinn jákvæður. Ég fagna því. Ég segi það að þar komi fleira til en aðgerðir ríkisvaldsins. Ef um hagnað er að ræða þá held ég að það sé greinin sjálf sem á stærstan hlut þar.
En ég bið hæstv. ráðherra sem hér eru að hugleiða það sem ég sagði hér áðan um möguleika þess að liðka til fyrir fyrirtækjum í sjávarútvegi til þess að geta keypt afla af erlendum veiðiskipum. Ég fullyrði að þar er um skjótvirka aðgerð að ræða og sú aðgerð gæti farið fram nú þegar. Ég held að það sé gáfulegra að gera slíkt en fara nú að sækja af einhverjum þunga í auknu magni í þorskinn. Ég held við eigum að hlusta grannt á okkar fiskifræðinga í því, við eigum ekki hæfari og betri vísindamenn í þeim efnum. Það væri mikið slys ef við ætluðum að fara að gera slíkt nú og eyðileggja þann ávinning sem okkur hefur hlotnast þar.
En ég endurtek það enn og aftur að ég bið hæstv. ráðherra að íhuga það, vegna þess að þeir hafa ákveðið það að grípa til annarra aðgerða, að skoða stöðu sjávarútvegsfyrirtækja um allt land, á hvern hátt megi þar koma til aðgerða. Ég held að það sem ég hef hér sagt sé sú aðgerð sem muni koma fljótt og réttlátlega niður og ekki aðeins fyrir útveginn, hún mun einnig skapa fjölda manns ný atvinnutækifæri.