Stækkun atvinnu- og þjónustusvæða á Vestfjörðum

115. fundur
Þriðjudaginn 22. mars 1994, kl. 23:52:11 (5544)


[23:52]
     Kristinn H. Gunnarsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Það verður forseta og e.t.v. þingsins að skera úr um það til hvaða nefndar málinu verður vísað en sterkustu rökin sem fram hafa verið borin fyrir því að málið fari til allshn. komu fram í máli ráðherranna tveggja. Ég get vel fallist á þau rök sem ráðherrarnir tveir, hæstv. ráðherra fjmrh. og sjútvrh., hafa sett fram í þessari umræðu sem leiða til þeirrar niðurstöðu að málið ætti að fara til allshn.
    Hvað varðar ágalla á frv. sem er þess eðlis að það er ekki hægt að styðja það í þeim búningi sem það er að það er auðvitað ekki hægt að leggja fram mál sem á í orði kveðnu að ná til sjávarútvegsfyrirtækja á Vestfjörðum en í hinu orðinu að útiloka velflest fyrirtæki frá aðstoð. Það er ekki hægt að styðja slíkan gjörning og ég veit að hæstv. fjmrh. áttar sig á því þegar hann hugsar málið.