Rannsóknir á atvinnulífi og náttúruauðlindum í Öxarfjarðarhéraði

121. fundur
Mánudaginn 28. mars 1994, kl. 16:23:13 (5685)




[16:23]
     Flm. (Tómas Ingi Olrich) :
    Virðulegi forseti. Ég vil aðeins koma inn á það sem kom fram í máli hv. þm. Jóhannesar Geirs Sigurgeirssonar að það er rétt hans mat að það skiptir mjög miklu máli að á uppbyggingu ferðaþjónustu í Öxarfjarðarhéraði verði litið sem lið í uppbyggingu ferðaþjónustu í Þingeyjarsýslum og raunar á Norðurlandi almennt því að það er slík uppbygging, samtenging á ferðaþjónustusvæðum, sem skiptir mestu máli fyrir ferðaþjónustuna í heild. Við höfum ekki skoðað uppbyggingu ferðaþjónustunnar nógu mikið með skilningi á þessum tengslum milli ákveðinna þjónustusvæða. Það vill svo til að ég er að skoða núna skýrslu sem er dönsk og fjallar sérstaklega um ferðaþjónustu í Danmörku. Í henni er lögð áhersla á það hversu háð svæðin séu, þótt þau séu í raun og veru í samkeppni, þá séu þau líka háð hvert öðru um uppbyggingu ferðaþjónustunnar í heild. Og því meira sem markaðssamstarfið er og að sjálfsögðu því meiri sem samkeppni er þeim mun meiri eru lífsmöguleikar greinarinnar í heild. Þetta er nú eitt af því athyglisverðasta sem kemur fram í þessari skýrslu auk margs annars. Þetta er því hugsað þannig að t.d. Húsavík njóti góðs af því ef ferðaþjónustan í Öxarfjarðarhérði vex og það sé hægt að hugsa sér að það væri til styrkingar ferðaþjónustu líka í Mývatnssveit ef þarna verður um að ræða samfellt þjónustusvæði í þessari atvinnugrein.
    Að lokum, virðulegi forseti, vil ég koma aðeins inn á það að ég er að vísu þeirrar skoðunar að sú tíð sé liðin að vatnaflutningar af þessu tagi verði skoðaðir eingöngu út frá möguleikum á orkumannvirkjum, en það vill svo til að það hafa verið til verulegir fjármunir til að skoða þessa virkjunarmöguleika en hins vegar hafa fjármunir til að skoða aðra atvinnuuppbyggingu og líka umhverfisþættina sem tengjast þessum orkumannvirkjum verið takmarkaðir og hættan í þessu máli er í raun og veru fólgin í því að það hefur tekist að sýna fram á það tölulega að þessir virkjunarkostir sem byggjast á vatnaflutningunum eru með allra hagstæðustu virkjunarkostum sem til eru á Íslandi. Það er hættan miðað við atvinnuástand okkar nú. Ef eftirspurn verður eftir þessari orku þá mun það ýta undir verulegan þrýsting á þessi mál. Þá skiptir miklu máli að vera búinn að skoða þau í víðara samhengi áður en til þess kemur.