Lyfjaverslun ríkisins

124. fundur
Fimmtudaginn 07. apríl 1994, kl. 17:26:16 (5961)


[17:26]
     Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson) (um fundarstjórn) :
    Virðulegi forseti. Ég vil benda á það að þetta mál er samkomulagsmál í nefndinni fyrir utan þetta bréf sem Kristín Ástgeirsdóttir sendi formanni nefndarinnar og dró til baka stuðning sinn við málið. Þess vegna tel ég ekki nokkra ástæðu til að fresta málinu og hvet forseta eindregið til þess að umræðu verði haldið áfram.