Réttindi eftirlitsmanna vegna samnings um herafla í Evrópu

125. fundur
Föstudaginn 08. apríl 1994, kl. 12:48:08 (6007)


[12:48]
     Páll Pétursson (andsvar) :
    Frú forseti. Einmitt vegna þess að þetta mál hefur verið á forræði utanrmn. þá finnst mér það styðja það að þar eigi það að halda áfram að vera. Mér er það hins vegar ekkert metnaðarmál að utanrmn. fjalli um málið. Það sem ég óska eftir er það að menn fari yfir það og geri sér grein fyrir afleiðingum þess. En af því að fyrri hlutinn, þ.e. meginmálið, var á forræði utanrmn. þá finnst mér þetta heyra þar líka.