Aðstoð við bændur vegna harðinda á síðasta ári

127. fundur
Mánudaginn 11. apríl 1994, kl. 16:32:09 (6114)


[16:32]
     Svavar Gestsson :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hv. 6. þm. Norðurl. e. fyrir að hreyfa þessu máli og sömuleiðis hæstv. landbrh. fyrir þau svör sem hann hefur veitt og hv. 3. þm. Vestf. og ég veit ekki hvað og hvað. Hér er fjöldinn allur af mönnum sem vill þakka sér það sem hér hefur gerst. Ég geri það í sjálfu sér ekki en ég vil biðja hæstv. ráðherra að gera þingmönnum þann greiða að koma á framfæri við þá sem þess óska og væntanlega flesta þingmenn þeim tölulegu upplýsingum um skiptingu á kjördæmi sem hér komu fram áðan, ekki til þess að metast á milli kjördæma heldur til þess að unnt sé að átta sig á því hvernig var farið með þessa athyglisverðu fjárlagaheimild.