Málefni aldraðra

129. fundur
Þriðjudaginn 12. apríl 1994, kl. 13:55:30 (6143)

[13:55]
     Svavar Gestsson (um atkvæðagreiðslu) :
    Virðulegi forseti. Ég undrast það hvað forsetinn á eriftt með að hlusta á tillögur formanns þingflokks Framsfl. Ég undrast það. Það kann að stafa af ástæðum sem mér eru ekki kunnar. En vegna þess

að forsetinn neitar að verða við þessari sanngjörnu ósk hv. þm. Páls Péturssonar, þá hlýt ég að halda fast við fyrri tillögu mína um að það gangi atkvæði hér um það að málinu verði vísað til heilbr.- og trn. Ég tel hins vegar að það þurfi sérstaklega að ræða við forsetana utan fundar um það hvernig þeir hlýða á þær óskir sem fram koma frá þingflokksformönnum.