Háskólinn á Akureyri

129. fundur
Þriðjudaginn 12. apríl 1994, kl. 14:08:36 (6149)


[14:08]
     Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson) :
    Hæstv. forseti. Ég vil aðeins taka undir þessa skoðun hv. þm. Svavars Gestsonar að ég tel fulla ástæðu til að þetta framgangskerfi, sem komið hefur verið á í Háskóla Íslands og Kennaraháskólanum og hér er verið að leggja til að það sama gildi fyrir Háskólann á Akureyri, verði allt tekið til endurskoðunar og litið á það í einu samhengi. Það er eflaust ýmislegt sem að því má finna. Ég bendi þó á að þetta er auðvitað ekki algerlega sjálfvirkt. Þeir sem óska eftir að komast í hærri stöður verða að hlíta því að fara með sín mál fyrir dómnefnd og því aðeins að þeir teljist hæfir hljóta þeir framgang. En engu að síður tek ég undir það að ástæða sé til þess að endurmeta þetta kerfi.