[21:01]
Hjörleifur Guttormsson (um fundarstjórn) :
Virðulegur forseti. Ég vildi koma því á framfæri hér til að greiða fyrir störfum á þessum kvöldfundi að ég mun óska eftir því síðar á fundinum eftir að hafa kvatt mér hljóðs að hæstv. heilbrrh. verði við auk hæstv. umhvrh. þar sem hér er um að ræða málasvið sem varðar bæði ráðuneytin.