[12:04]
Svavar Gestsson (um fundarstjórn) :
Virðulegi forseti. Ég tel að það sé ástæða til þess að taka undir þá afsökunarbeiðni sem hér kom fram frá hv. 6. þm. Norðurl. e. varðandi það að við fórum örugglega báðir dálítið út fyrir lagabókstafinn í strangasta skilningi hans þegar við tókum upp annað mál hér í andsvörum áðan. Hins vegar var ástæðan sú, hæstv. forseti, að það voru stór tíðindi á ferð sem snertu það mál sem uppi var. Þannig háttar til að við erum hér eða vorum og verðum kannski á eftir að ræða mál sem heitir Lyfjaverslun ríkisins. Það mál hefur verið til meðferðar í þinginu um langt skeið. Núna hefur það hins vegar gerst og var fyrst sagt frá því hér í þessum virðulega ræðustól af hæstv. fjmrh. áðan að það standa yfir viðræður um sama mál við BSRB og fleiri aðila um aðaldeiluefni málsins, þ.e. hvernig farið verður með réttindi og skyldur opinberra starfsmanna, biðlaun, lífeyrissjóð og allt það sem við höfum margoft rætt.
Ég tel að það séu þess vegna svo mikil tíðindi að það þurfi að vera aðstaða til þess í þingsköpum með einum eða öðrum hætti að bregðast við þegar ráðherrar skýra frá tíðindum af þessu tagi, bregðast við öðruvísi og annars staðar í dagskránni heldur en bíða eftir því að að viðkomandi manni komi á langri mælendaskrá sem fyrir liggur. Ég kveð mér þess vegna hljóðs um fundarstjórn forseta til þess að beina því til forseta að kanna leiðir til þess að viðbrögð af því tagi sem sá sem hér stendur viðhafði fyrr í dag eigi rétt á sér samkvæmt strangasta skilningi á bókstaf þingskapanna því að hér var vissulega um stór tíðindi að ræða, kaflaskil í þeirri umræðu sem hér hefur farið fram.
Varðandi mætingar þingmanna Sjálfstfl. hér í dag þá er það auðvitað mjög sérkennilegt, verð ég að segja alveg eins og er. Sömuleiðis verð ég að taka undir það sem fram kom hjá hv. 2. þm. Vesturl. í þessu efni sem er auðvitað mjög alvarlegt, það sem hún skýrir frá. Ég vil þó taka fram að í sumum nefndum þingsins þar sem ég þekki ágætlega til, mæta sjálfstæðisþingmenn yfirleitt heldur vel, flestallir en þó ekki alveg allir.