[10:52]
Halldór Ásgrímsson :
Virðulegur forseti. Við þingmenn Framsfl. styðjum þetta mál á grundvelli þeirra brtt. sem komið hafa fram á þskj. 682. Við munum hins vegar greiða atkvæði á móti 3. gr. frv. Við teljum að það standist ekki að gera breytingar á réttindum og skyldum starfsmanna ríkisins með þeim hætti að taka út einstaka starfsstéttir. Ef breytingar verða þar gerðar á, sem ýmis rök eru með og móti, þá þurfi gera það með almennum hætti. Við höfum gert grein fyrir þessari afstöðu okkar í öðrum málum og ég vísa til hennar, en að öðru leyti munum við styðja málið.