Verðjöfnunarsjóður sjávarútvegsins

133. fundur
Föstudaginn 15. apríl 1994, kl. 16:15:13 (6407)


[16:15]
     Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar) :
    Herra forseti. Síðari spurning hv. þm. er á misskilningi byggð. Ég gerði skýra grein fyrir því í minni ræðu að það hefði ekki verið aðalástæða fyrir flutningi þessa frv. Þetta álit lá fyrir frá þeirri nefnd sem skipuð hafði verið til að endurskoða þessi lög. Ég er sammála þeirri niðurstöðu sem þar er gefin að það sé ekki unnt að halda áfram með sveiflujöfnun af þessu tagi í fullkominni ósátt við atvinnugreinina. Ef menn vilja beita slíkri sveiflujöfnun þá verður að finna aðrar leiðir og ég minnti mjög rækilega á það hvernig þessi sjóður virkaði á þeim tíma þegar verulegur hallarekstur hvolfdist yfir sjávarútveginn án þess að um væri að kenna því verðfalli að leitt hefði til þess að inngreiðslur í sjóðinn stöðvuðust. Slíkt misgengi getur ekki gengið og verðjöfnun af því tagi fær ekki staðist að mínu mati. Menn verða þá að finna aðrar leiðir. Að þessu leyti er ég algjörlega sammála niðurstöðum nefndarinnar um að leggja sjóðinn niður og því var þetta lagt til.
    Ég hef hins vegar lýst því hér að ég er tilbúinn til að hlusta á þann málflutning sem hér hefur verið hafður frammi og hef boðist til þess að miðla málum með þeim hætti sem ég hef lýst og vona að það verði metið.