Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
Það munu hafa orðið hér smá mistök. Þannig var að hv. 4. þm. Norðurl. v. óskaði eftir að veita andsvar áður en umræða utan dagskrár hófst en þar sem samkvæmt þingskapalögum er einungis heimilt að veita andsvör strax að lokinni ræðu metur forseti það svo að þetta verði niður að falla að þessu sinni og gefur hv. 2. þm. Norðurl. v. orðið.