Um dagskrá

139. fundur
Mánudaginn 25. apríl 1994, kl. 15:11:51 (6534)

[15:11]
     Svavar Gestsson :
    Virðulegi forseti. Aðeins vegna dagskrár. Það er væntanlega ljóst að auk þess að 1. dagskrármálið verður ekki tekið fyrir verður heldur ekki 2. dagskrármálið tekið fyrir á fundinu. Ég held að það sé nauðsynlegt að það sé staðfest af forsetastóli ef það er rétt hjá mér að svo sé vegna þess að mér er kunnugt um að þó nokkrir aðilar hafa heiðrað okkur með nærveru sinni af því að þeir gerðu ráð fyrir því að 2. dagskrármálið yrði tekið fyrir.