Lyfjalög

141. fundur
Miðvikudaginn 27. apríl 1994, kl. 00:27:26 (6618)


[00:27]
     Frsm. minni hluta heilbr.- og trn. (Ingibjörg Pálmadóttir) (um fundarstjórn) :
    Virðulegi forseti. Ég ætla að minna á að það var fundur með formönnum þingflokka og forseta þingsins í gær og þá var um það rætt hvað þessi fundur ætti að standa lengi. Það var talað um að hann stæði til eitthvað á bilinu tólf til hálfeitt. Nú er klukkan hálfeitt þannig að ég tel rétt að slíta þessum fundi.