[01:01]
Heilbrigðisráðherra (Guðmundur Árni Stefánsson) (um fundarstjórn) :
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu um stjórn fundarins en gagnstætt venju er hún um margt gagnleg. Það hefur komið fram sem ég hef verið að sannfærast um hægt og bítandi eftir því sem á umræðuna hefur liði að það er almennari stuðningur við þetta frv. og þær brtt. sem hér liggja fyrir en ég átti von á. Ef þessu heldur fram sem horfir þá á ég ekki von á öðru en því að hér ríki almennur stuðningur við frv. og þær brtt. sem heilbr.- og trn. í heild sinni hefur unnið svo vel að. Það eru því öll efni og mjög skynsamlegt núna þegar svona vel gengur að menn haldi áfram og leiði málið til lykta.