Samstarfsnefnd sjómanna og útvegsmanna

143. fundur
Fimmtudaginn 28. apríl 1994, kl. 12:12:43 (6704)

     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Nú er forseta vandi á höndum. Fjórir hv. þm. hafa óskað eftir að veita andsvar og hv. talsmaður Kvennalistans er næstur á mælendaskrá og þarf að komast að fyrir hlé sem var meiningin að gera klukkan hálfeitt. Þá eiga að hefjast fundir í sjútvn. En forseti ætlar að grípa til þess ráðs að fara aðeins fram í hléið með fundinn og leyfa andsvör þannig að hver ræða verði ein mínúta. Það þýðir að við förum eitthvað fram í hádegisverðartímann en það verður þá að fresta fundinum lengur sem því nemur.