Samstarfsnefnd sjómanna og útvegsmanna

143. fundur
Fimmtudaginn 28. apríl 1994, kl. 12:14:57 (6707)


[12:14]
     Frsm. meiri hluta sjútvn. (Vilhjálmur Egilsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Varðandi varnaðarorð forustumanna þeirra fyrirtækja sem hv. þm. Jóhannes Geir Sigurgeirsson ræddi um áðan þá vil ég vekja athygli hans á því að sjómenn á þeim stöðum sem þessi fyrirtæki starfa fóru í verkfall. Spurningin snýst þá um það: Af hverju fóru þessir sjómenn í verkfall þrátt fyrir það að vera að vinna gegn hagsmunum sinna fyrirtækja og sinna eigin hagsmuna, eins og hv. þm. heldur fram? Er það ekki svo að sjómenn hjá þessum fyrirtækjum standa enn þá að baki sjómannaforustunni í þeirri kröfugerð sem varð tilefni þeirrar málamiðlunar sem þetta mál allt saman byggist á?