Samstarfsnefnd sjómanna og útvegsmanna

143. fundur
Fimmtudaginn 28. apríl 1994, kl. 12:18:04 (6710)


[12:18]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Það kom fram í andsvari hv. þm. að sjónarmið manna gagnvart þessum málum væru e.t.v. eitthvað að breytast og ég held að það sé nefnilega málið. Þau eru meira en eitthvað að breytast, þau eru að breytast að verulegu leyti. En þrátt fyrir það á að keyra málið í gegn á grundvelli samkomulags sem er komið á samkomulagsins vegna. Það á að breyta breytinganna vegna, ekki vegna þeirra hagsmuna sem um er að ræða.