Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands

143. fundur
Fimmtudaginn 28. apríl 1994, kl. 15:08:55 (6731)


[15:08]
     Frsm. heilbr.- og trn. (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Virðulegi forseti. Ég vil geta þess að um nál. um frv. til laga um eignarhaldsfélag Brunabótafélags Íslands varð góð eining að undanteknu því að Finnur Ingólfsson, Margrét Frímannsdóttir og Ingibjörg Pálmadóttir rita undir það með fyrirvara. Að öðru leyti leggur nefndin til að frv. verði samþykkt óbreytt eins og það var lagt fyrir.
    Ég legg til að að lokinni 2. umr. verði frv. vísað til 3. umr. ásamt brtt.