[18:35]
Frsm. meiri hluta sjútvn. (Vilhjálmur Egilsson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Varðandi hvort það þurfa að vera skriflegir samningar eða ekki þá gera menn að sjálfsögðu þá samninga sem eru löglegir og eru þeim í hag. Það þarf ekkert að felast í því að menn séu að gera einhverja samninga út í loftið þó að verð á kvótum í slíkum samningum fari að sjálfsögðu eftir því hvað hvað þeim hentar.
Varðandi Alþb. og áhyggjur af því þá hefur maður fylgst með sinnaskiptum þeirra manna sem samþykktu frv. til laga um stjórn fiskveiða árið 1990 og þeirra málflutning þá og svo hvernig hann er núna. Það getur enginn hlustað á slíka breytingu í málflutningi án þess að hafa af því verulegar áhyggjur.
Varðandi viðmiðunarverðið þá sagði ég áðan að ef það eru skyldir aðilar í viðskiptum og ef fiskkaupandinn, sem er að greiða sínum eigin sjómönnum tiltekið fiskverð, víkur verulega frá því niður á við í viðskiptum við óskylda aðila þá er þar kominn grunnur að því að ákveða hvað sé bersýnilega ósanngjarnt.