Vernd og veiðar á villtum fuglum og spendýrum

145. fundur
Föstudaginn 29. apríl 1994, kl. 15:25:12 (6847)


[15:25]
     Petrína Baldursdóttir (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Já, ég tel að með því að sameina þessar stofnanir sé hagræðing aukin og það verði meiri skilvirkni í starfi. Og ég get ekki séð annað en ef við horfum langt fram í tímann geti einmitt verið það langtímamarkmið að við séum að hagræða og spara. Varðandi seinni spurninguna segi ég bara já.