Vernd og veiðar á villtum fuglum og spendýrum

145. fundur
Föstudaginn 29. apríl 1994, kl. 15:28:31 (6851)


[15:28]
     Petrína Baldursdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég veit ekki hvort hv. þm. Kristín Einarsdóttir hlustaði á mína ræðu. Ég var ekkert að tala á móti þessu frv. sem ég stend að með meiri hluta umhvn. Ég varð aðeins að mæla fyrir brtt. við eina grein frv., 4. gr. frv., um það að fela Náttúrufræðistofnun Íslands þau verkefni sem veiðistjóra er ætlað að sinna samkvæmt frv.