Sala ríkisins á SR-mjöli

148. fundur
Mánudaginn 02. maí 1994, kl. 18:32:15 (6951)


[18:32]
     Sigbjörn Gunnarsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég er fullkomlega ósammála hæstv. sjútvrh. vegna þess að ég tel einmitt að skilyrðin hafi leitt til mismununar. Það er rétt, og ég tók fram í ræðu minni, að hópur sá sem kenndur er við Harald Haraldsson uppfyllti alls ekki skilyrðin. Ég reyndi að sýna fram á það með rökum að hópurinn sem valinn var sem kaupandi hefði heldur ekki uppfyllt skilyrðin og vísaði þar til verklagsreglna.
    Hins vegar var Akureyrarbæ fullkomlega ljóst að þeir uppfylltu ekki skilyrðin eins og þau voru sett fram og þess vegna hætti Akureyrarbær við. Akureyrarbær treysti sér ekki til að vinna verkið til fullnustu á þeim skamma fresti sem gefin var.