Sala ríkisins á SR-mjöli

148. fundur
Mánudaginn 02. maí 1994, kl. 21:21:49 (6978)


[21:21]
     Steingrímur J. Sigfússon (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Þetta er auðvitað algjör fjarstæða. Hv. þm. veit greinilega ekkert hvað hann er að tala um. Það að bera þetta saman við kaup á t.d. þurrkara inn í fullbyggða verksmiðju, einu tæki inn í framleiðslurásina, eru gersamlega ósambærilegir hlutir. Ég held að hv. þm. ætti að kynna sér hvað það kostar að byggja Seyðisfjörð upp. Ætli það sé ekki bara í nágrenni við milljað kr. eða rúmlega það? Þar stendur það mikla mannvirki klárt. Það að kaupa einn og einn þurrkara eða eina og eina kvörn eða eina og eina pressu inn í verksmiðju sem að öðru leyti er fullbyggð eru bara ósambærilegir hlutir. Bæði Hafsíld á Seyðisfirði og Bolungarvíkurverksmiðjan eru verksmiðjur sem þarfnast mjög gagngerrar enduruppbyggingar ef þær eiga að komast í sambærilegt horf hvað gæði snertir og hinar. Og bara til að fara aftur með þessar tölur, hæstv. forseti, um verðlagninguna, þá er þetta svona: Kaupverðið er 730 millj. Yfirteknar skuldir upp á 520 eða þar um bil. 65 millj. í arð í viðbót og 15 millj. í einkavæðingarkostnað. Eftir standa 130 millj. sem ríkið fær nettó. Og er það uppsprengt verð, hv. þm.? 130 millj. fyrir þetta mikla fyrirtæki?