Sala ríkisins á SR-mjöli

148. fundur
Mánudaginn 02. maí 1994, kl. 23:23:38 (7015)


[23:23]
     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það er bersýnilega erfitt ástandið í Sjálfstfl. á Akureyri þegar menn þurfa að grípa til útúrsnúninga af þessu tagi til að reyna að verja sig á síðkvöldum hér á þessum fallega vordegi. Satt að segja finn ég frekar en hitt til með hæstv. landbrh. og nenni ekki að svara skætingi hans frekar, hæstv. forseti.