[11:54]
Frsm. meiri hluta sjútvn. (Vilhjálmur Egilsson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Annað sem hv. þm. fjallaði um í ræðu sinni var sá vandi sem upp er kominn á Hornafirði vegna hagræðingar í fyrirtækinu Borgey og það dæmi sem hann tók varðandi það. Það sem Borgey stílaði fyrst og fremst inn á var fiskvinnslukvótinn og það er mjög bagalegt að hafa ekki náð honum fram. En 15% reglan mun ekki að neinu leyti hamla því fyrirtæki í sínum störfum vegna þess að það er hægt að flytja kvóta af þeim bátum sem ekki ætla sér að veiða hann yfir á þá báta sem ætla sér að veiða þann kvóta. Spurningin er aðeins um tímasetningar og hvernig menn haga þessum viðskiptum. En í grundvallaratriðum verður alveg frjálst að framselja kvóta af bátum sem ætla ekki að veiða hann yfir á báta sem ætla sér að veiða hann.