[16:20]
Einar K. Guðfinnsson (andsvar) :
Virðulegur forseti. Það er alveg hárrétt ábending hjá hv. 6. þm. Vestf. að staða hinna svokölluðu kvótabáta, þ.e. þeirra smábáta sem á sínum tíma völdu sér kvóta í stað krókaleyfis, er auðvitað mjög alvarleg. Ástæðan er einfaldlega sú að kvóti þessara báta er fyrst og fremst þorskur og nær eingöngu þorskur og skerðingin hefur orðið mest í þorskinum. Ég er alveg sammála því að það þarf sérstaklega að huga að þessum bátum, en vandinn er bara sá að vandi þessara báta er ekki bara einskorðaður við stærðina undir sex tonnum heldur er hér um að ræða vanda báta sem eru líka af stærri gerðinni. Ég vil benda á í þessu sambandi að sú ákvörðun hæstv. sjútvrh. að auka aflaheimildir í rækju mun mjög koma til móts við vanda margra þessara báta. Og í þessu sambandi vil ég t.d. vekja athygli á því að bátar um og yfir 20 tonn og þaðan af stærri á Húnaflóasvæðinu, t.d. á Hólmavík, í kjördæmi okkar hv. þm. --- þessi ákvörðun hæstv. sjútvrh. hefur gjörbreytt stöðu þessara báta og gert það að verkum að þeir hafa núna aflaheimildir og verkefni út þetta fiskveiðiár. Þess vegna kunni ég ekki alls kostar að meta þann tón sem mér fannst koma fram í ræðu hv. þm. þegar hún talaði um þessa aukningu á aflaheimildum í rækjunni að hér hefði verið um að ræða einhvers konar kaup á einhverri eyri til að koma til móts við eða ná samkomulagi eingöngu í stjórnarflokkunum. Hér var um að ræða sjálfstæða, skynsamlega og vel ígrundaða ákvörðun sem gerði það að verkum að hér var verið að skapa ný verkefni, einkanlega fyrir þá báta sem ég veit að við hv. þm. höfum haft áhyggjur af vegna lítilla aflaheimilda þeirra. Þannig að þarna var verið að taka á hluta af þeim vanda sem hv. þm. var að gera að umtalsefni.
Ég tel hins vegar að það þurfi að skoða alveg sérstaklega vanda þeirra báta sem enn þá sitja eftir. Þeir eru ekki mjög margir og ég tel eðlilegt að sú vinna fari fram í sumar þannig að mönnum sé það ljóst fyrir næstu kvótaúthlutun hvernig staða þeirra er og að á grundvelli þeirra upplýsinga verði hægt að grípa til frekari aðgerða.