Stjórn fiskveiða

149. fundur
Þriðjudaginn 03. maí 1994, kl. 17:59:42 (7143)


[17:59]
     Finnur Ingólfsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það er hárrétt, hv. 3. þm. Vesturl., að tölurnar sem ég nefndi voru gamlar. Þær voru frá árinu 1983--1984. En ég sé að hv. þm. hefur misskilið mig illilega í þeirri umræðu. Ég var einfaldlega að skýra hvað kvótakerfið hefði skilað mikilli hagræðingu strax á fyrsta ári, miklum sparnaði í sóknarkostnaði. Auðvitað ná menn ekki 15--20% sparnaði á hverju einasta ári.
    Varðandi síðari spurningu hv. þm. hvort 1. gr. um eignarréttinn í frv. um stjórn fiskveiði eigi ekki að standa þá á hún að standa, enda er það klárt að það er ekki um eignarrétt á kvótanum að ræða. Það er

um nýtingarrétt að ræða og það er grundvallarmunur, hv. þm., og ef þingmaðurinn hefur ekki gert sér grein fyrir því þá þurfa menn að lesa betur heima. ( Gripið fram í: Er framsal nýting?)