[21:11]
Guðni Ágústsson (andsvar) :
Hæstv. forseti. Við þurfum svo sem ekkert að vera að deila um þetta atriði, við Vilhjálmur Egilsson.
( Forseti (VS) : Hv. þm.)
Hv. þm. Vilhjálmur Egilsson. Ég hygg að það sé ekki út í loftið að þeir menn sem gerst þekkja til í fiskvinnslunni á Íslandi telja að þessi skerðing á framsalinu muni valda mjög mikilli óvissu og mismun á milli greinanna. Ég fæ því ekki séð að hv. þm. Vilhjálmur Egilsson fari með rétt mál í þetta sinn. Ég er auðvitað tilbúinn að rökræða það við hann og fara betur yfir frv. en mér sýnist að þeir menn sem ég gerst trúi í þessu máli hafi rétt fyrir sér. Þar treysti ég vel fulltrúum Framsfl. og ekki síður þeim mörgu mönnum sem vinna í greininni sem ég hef heimsótt og rætt við og hafa farið yfir þetta mál. Þeir hafa ekki séð þennan sjónarhól þingmannsins með þeim hætti sem hann hefur lýst.