[21:51]
Frsm. meiri hluta sjútvn. (Vilhjálmur Egilsson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Vegna þeirra togaraútgerða sem eiga í erfiðleikum með að ná kvóta sínum fyrir norðan vegna þess hvernig ástandið er í sjónum segir hv. þm.: Ja, það er bara þeirra vandamál. Bara þeirra vandamál. Þetta er svona álíka og að segja við bændur fyrir norðan, sem kannski lenda í kalsumri og geta ekki heyjað, að þeir megi ekki kaupa hey annars staðar frá, þaðan sem betur árar. Segja bara við þessa menn: Ja, það er bara þeirra vandamál --- svo eigi bara að fella skepnurnar.