[23:55]
Frsm. 2. minni hluta sjútvn. (Stefán Guðmundsson) (andsvar) :
Hæstv. forseti. Þetta veit hv. þm. Guðmundur Hallvarðsson og þetta er mér alveg fullkunnugt um og ég sagði það í máli mínu. Þetta veit líka hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson, sem ég gat um hér áðan. En þetta vita bara ekki allir þingmenn Sjálfstfl. Ég var ekki að finna að því að Grandi flytti út fisk. Ég veit að Grandi rekur prýðisgott fyrirtæki, en mér finnst hart að vera að vega að þeim mönnum sem á þennan hátt hafa verið að reyna að hagræða og bjarga sér í greininni. Menn gera þetta af illri nauðsyn og ég þarf ekki að víkja aftur að því sem ég gat um í sambandi við Fiskiðju Sauðárkróks, ég gerði það held ég nógu greinilega. En ég átta mig ekki á því hvað hv. þm. er að tala um þegar hann segir að þingmenn Framsfl. virðast hafa gleymt einni stétt manna sem eru sjómenn. Ég veit ekki hvað hv. þm. er að tala um.
Ég kannast ekki við það.