Stjórn fiskveiða

149. fundur
Miðvikudaginn 04. maí 1994, kl. 00:11:09 (7204)


[00:11]
     Frsm. 2. minni hluta sjútvn. (Stefán Guðmundsson) :
    Virðulegi forseti. Mér er alveg ljúft að svara þessu. Hv. þm. svarar þessu sjálfur. Málflutningur þingmannsins sýnir það að hann hefur ekkert verið hér í dag. Hann hefur ekki fylgst með umræðunni. Ef hann hefði gert það þá mundi hann ekki tala eins og hann talaði. Það er svarið.