Stjórn fiskveiða

149. fundur
Miðvikudaginn 04. maí 1994, kl. 02:40:49 (7227)


[02:40]
     Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar) :
    Herra forseti. Vegna fyrirspurnar hv. 6. þm. Norðurl. e. vil ég aðeins segja að ég veit í sjálfu sér ekki neitt frekar hvað felst í hans hugmynd en í fljótu bragði sé ég ekki lausn í henni þó að allar hugmyndir megi að sjálfsögðu athuga frekar og skoða.