Prentuð áætlun um þinghaldið

152. fundur
Fimmtudaginn 05. maí 1994, kl. 10:36:21 (7276)

     Forseti (Sturla Böðvarsson) :
    Forseti hefur hlýtt á athugasemdir og fyrirspurnir hv. þm. og getur sagt á þessari stundu að það er að sjálfsögðu unnið að því að gera áætlun um lok þingsins. Eins og oft vill verða þá gengur ekki allt eftir fyrirframgerðri áætlun í lokahrinu þingstarfanna, en að sjálfsögðu vinnur forsætisnefndin að því að reyna að gera áætlun sem hægt er að vinna eftir til síðasta dags.