Reynslusveitarfélög

152. fundur
Fimmtudaginn 05. maí 1994, kl. 21:46:11 (7326)


[21:46]
     Ingibjörg Pálmadóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Varðandi það sem hæstv. félmrh. sagði áðan um vegamál þá sagði hún, ef ég hef heyrt rétt, að sameining sveitarfélaga hafi verið höfð til hliðsjónar við auknar framkvæmdir í vegamálum. Ég held að það sé rangt hjá hæstv. félmrh. Ég kannast alla

vega ekki við það úr mínu kjördæmi að það hafi verið haft neitt til hliðsjónar. Og ef svo er þá langar mig að vita hvað þar hefur verið haft til hliðsjónar, auknar vegaframkvæmdir og sameining sveitarfélaga. En það var einmitt það sem menn bundu mestar vonir við varðandi samningu eins og ég hef margsinnis sagt úr þessum stóli.