[22:53]
Vilhjálmur Egilsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Bara til að taka af allan vafa þá snýst fyrirvari minn um þennan skattaþátt og ef ekki er tekið á honum þá get ég ekki samþykkt þetta mál. Væri hins vegar endurskoðaður skattaþátturinn varðandi húsaleigutekjur þá mundi ég líta öðruvísi á málið.