Húsaleigubætur

152. fundur
Föstudaginn 06. maí 1994, kl. 00:54:48 (7378)

     Forseti (Pálmi Jónsson) :
    Forseti hefur hlýtt á þær óskir sem fram hafa komið um að þessari umræðu verði frestað og málið tekið fyrir í nefnd. Forseti telur eðlilegast þar sem nú er a.m.k. væntanlega langt liðið á þessa umræðu og enginn á mælendaskrá að þessari umræðu megi nú ljúka. Breytingartillögur við frv. verði kallaðar til baka ef hv. nefnd vill taka málið til athugunar á milli 2. og 3. umr. sem er að dómi forseta eðlilegri meðferð mála heldur en að rjúfa umræðuna nú. Forseti fer fram á að þetta vinnulag megi viðhafa.