[18:34]
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir :
Virðulegur forseti. 39. gr. markar upphafið að XIV. kafla þessa frv. sem lýtur að lyfjaverði. Það var getið um það hér áðan að í markmiðsgreininni, þ.e. 1. gr. frv., sé talað um lyfjaþjónustuna sem hluta af heilbrigðisþjónustunni. Ég lít svo á að með þeim ákvæðum sem er að finna í þessum kafla frv. sé í rauninni verið að fara út á þá braut að verð á lyfjum verði mismunandi á landinu, þ.e. það munu ekki allir njóta sömu verðlagningar í heilbrigðisþjónustunni og þess vegna greiði ég atkvæði gegn þeim greinum frv. sem falla undir þennan kafla.