Vernd og veiðar á villtum fuglum og spendýrum

154. fundur
Laugardaginn 07. maí 1994, kl. 10:02:32 (7579)

     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Forseti hafði heyrt þessa beiðni hv. þm. en vissi ekki til þess að hann talaði fyrir alla þingmenn þannig að forseti ætlaði að spyrja hv. 11. þm. Reykv. sem er næstur á mælendaskrá eftir því hvort hann óskaði eftir að tala núna eða eftir að hæstv. starfandi umhvrh. væri kominn.