Jöfnun á flutningskostnaði olíuvara

154. fundur
Laugardaginn 07. maí 1994, kl. 13:03:35 (7632)


[13:03]
     Halldór Ásgrímsson (um atkvæðagreiðslu) :
    Frú forseti. Ég vildi aðeins taka það fram að þetta mál þarf að taka breytingum á milli 2. og 3. umr. þannig að efh.- og viðskn. á eftir að fjalla betur um það en það er nauðsynlegt að afgreiða það nú eins og það er til 3. umr. og nefndin mælir með því.