Áburðarverksmiðja ríkisins

156. fundur
Mánudaginn 09. maí 1994, kl. 17:02:40 (7726)


[17:02]
     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Þetta var fróðleg ræða en ég verð að segja alveg eins og er að ég áttaði mig ekki á því hvort fram kom í ræðunni svar við minni fyrirspurn sem var einfaldlega þetta: Mun hæstv. iðnrh. sem slíkur þola það að Landsvirkjun mismuni iðnfyrirtækjum í landinu eftir eigin geðþótta að því er varðar verðlagningu á raforku til iðnaðarframleiðslu? Það var sú spurning sem ég bar hér fram og hæstv. ráðherra svaraði ekki að ég best heyrði.