Skuldastaða heimilanna

157. fundur
Þriðjudaginn 10. maí 1994, kl. 17:34:09 (7875)


[17:34]
    Kristinn H. Gunnarsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það var tvennt sem kom fram í máli hæstv. félmrh. sem þykir ástæða til að gera athugasemdir við. Það fyrra var samanburður á vaxtabótum sem hæstv. ráðherra var með og las upp í annað sinn, þar sem hann bar saman árin 1991 og 1993. Þar þarf hæstv. ráðherra auðvitað að gera ráð fyrir því hvernig vaxtabæturnar verða 1994, en ráðherrann er búinn, ásamt öðrum þingmönnum stjórnarliðsins, að samþykkja lagabreytingu sem skerðir vaxtabætur á árinu 1994 verulega. Það er ekki heiðarlegt af hæstv. ráðherra að geta að engu þessarar lagabreytingar í samanburðinum.
    Í öðru lagi eru það ummæli hennar um hugmynd mína um að stytta lánstímann í stað þess að hækka vexti. Það er grundvallarmisskilningur að það sé um aukna greiðslubyrði að ræða í minni hugmynd. Ég er bara að segja að í stað þess að hækka vextina og auka greiðslubyrðina með því að hækka vextina og láta menn borga vexti þá á að láta menn borga hærri afborganir. Það er nákvæmlega jafnmikið sem ég er að tala um að menn borgi eftir sem áður, en í stað þess að borga vexti þá borgi menn afborganir og verði fyrr lausir við lánin.