Þróunarsjóður sjávarútvegsins

157. fundur
Þriðjudaginn 10. maí 1994, kl. 22:36:34 (7893)


[22:36]
     Frsm. minni hluta sjútvn. (Steingrímur J. Sigfússon) (um fundarstjórn) :
    Hæstv. forseti. Ég lagði nokkrar spurningar fyrir hæstv. sjútvrh. Ég kann því satt best að segja heldur illa að hæstv. ráðherra skuli læðast burtu úr þingsalnum undir miðri umræðunni og láta sig vanta þegar meiningin er svo að ljúka henni. Ég óska þess vegna eftir því að tekinn sé kaffibollinn frá hæstv. sjútvrh. og honum gert aðvart um það að þess sé vænst og beðið að hann svari þeim spurningum sem fyrir hann voru lagðar í umræðunni.
    Í öðru lagi hefði ég gjarnan kosið að hæstv. utanrrh. hefði tjáð sig um það atriði sem ég gerði sérstaklega að umræðuefni og lýtur að túlkun Alþfl. á hinum fræga þúsund kalli og auðlindaskattinum.
    En ég fer eindregið fram á að umræðunni verði ekki lokið fyrr en hæstv. sjútvrh. hefur verið gert viðvart um að þess sé vænst að hann svari þeim spurningum sem fyrir hann voru lagðar. Ef ráðherra verður ekki við því, hæstv. forseti, þá óska ég eftir að ég verði settur á mælendaskrá.