Forseti (Sturla Böðvarsson)
:
Forseti hefur leitað upplýsinga um ferðir hæstv. forsrh. og fengið þær upplýsingar að hann sé á leiðinni til þinghússins og væntir forseti þess að hv. þm. geti haldið umræðunni áfram. Mælist forseti eindregið til þess að þingmenn taki tillit til þeirra aðstæðna sem hér eru.