Stækkun atvinnu- og þjónustusvæða á Vestfjörðum

159. fundur
Miðvikudaginn 11. maí 1994, kl. 18:49:14 (8019)


[18:49]
    Steingrímur J. Sigfússon :

    Hæstv. forseti. Ég vona að þessi atkvæðagreiðsla standi opin sem lengst og sem flestir stjórnarliðar komi hér upp og geri grein fyrir atkvæði sínu með svipuðum hætti og tveir hafa nú gert og taki þar með undir málflutning og tillöguflutning stjórnarandstöðunnar í þessu máli. Þeir fara hér með nákvæmlega sömu rök og við höfðum fyrir því að flytja breytingartillögur við þetta frv., en kjósa að sitja hjá ella að þeim felldum. Staðreyndin er sú að það eru þeir ágallar á framsetningu þessa máls og formi að það er að mínu mati og okkar stjórnarandstæðinga ekki sómasamlegt að afgreiða það í óbreyttri mynd.