Fjárlög 1994

11. fundur
Þriðjudaginn 12. október 1993, kl. 18:29:31 (210)


[18:29]
     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hv. 6. þm. Vestf. sem á sæti í fjárln. fyrir þessar undirtektir við þessar ábendingar. Ég vona að þessi umræða geti orðið til þess að framvegis taki menn með skipulegri hætti á þessum málum en verið hefur og ég skil orð hennar svo að hún muni beita sér fyrir því. Mér þykir vænt um að það skuli komið fram, ekki síst með hliðsjón af því að við munum ræða hér næstu daga um ríkisreikninginn og þá höfum við öll þessi mál í samfellu og ég er viss um að við viljum öll standa sem faglegast að þessum málum.