Efnahagsaðgerðir vegna kjarasamninga

13. fundur
Fimmtudaginn 14. október 1993, kl. 14:10:13 (299)


[14:10]
     Steingrímur J. Sigfússon (andsvar) :
    Það er hárrétt, hæstv. forseti, að menn hafa haft og hafa miklar áhyggjur af afkomu sjávarútvegsins. En ég held að einmitt niðurfelling aðstöðugjaldsins hafi ekki nema að litlu leyti komið sjávarútveginum til hjálpar sérstaklega. Og lækkun tekjuskattsins, ja því miður þekki ég nánast ekki eitt einasta sjávarútvegsfyrirtæki sem hefur nokkurn skapaðan hlut út úr því að tekjuskattur fyrirtækja sé lækkaður. Eða þekkir t.d. hv. 1. þm. Vestf. eitthvert sjávarútvegsfyrirtæki í svo miklum gróða að það hafi verið að borga tekjuskatt? ( Gripið fram í: Það er til.) Það er til, jæja, kannski er það til, tvö eða svo. ( Gripið fram í: Þau eru mjög fá.) Þau eru mjög fá. Ég held að þegar betur er að gáð borguðu og borga því miður sárafá fyrirtæki í sjávarútvegi tekjuskatt . Í öðru lagi liggur fyrir að vegna erfiðleika og taps í sjávarútvegi mörg undanfarin ár var aðstöðugjaldið í stórum stíl lækkað eða jafnvel fellt niður hjá sjávarútvegsfyrirtækjunum hringinn í kringum landið og hefur það haft sín áhrif á afkomu þeirra sveitarfélaga sem mestar fórnir hafa fært í því samhengi. Sem sértæk aðgerð gagnvart vanda sjávarútvegsins held ég að manni hafi dottið margt fyrr í hug en flöt niðurfelling aðstöðugjalds án þess að ég sé að draga úr því að það var á margan hátt gott að losna við þann skatt. En ef menn hefðu í staðinn a.m.k. að einhverju leyti haft manndóm í sér til að reyna að útfæra einhverja afkomutengda skatta þannig að betur stæðu fyrirtækin í landinu, tækju einhvern þátt í erfiðleikunum með öðrum, held ég að það hefði frekar verið hægt að ná um þetta einhverri sátt.