[18:05]
Kristinn H. Gunnarsson :
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. 2. þm. Vesturl. fyrir að hreyfa þessu máli. En ég vil segja við hæstv. heilbrrh. að hann verður að gera betur en hann gerði í svörum sínum. Hann svaraði spurningunni þannig að hann hefði áhuga á því að tryggja rekstur meðferðarheimilisins að Staðarfelli. Ég tel að ráðherra geti gert betur og eigi að gera betur og svara því afdráttarlausar hver hugur hans er, hver vilji hans er, hvað hann muni gera. Þá kom fram í máli ráðherrans að SÁÁ hefði tæplega 30 millj. kr. tekjur af rekstri spilakassa. Ég vildi því spyrja hæstv. ráðherra: ef svo færi að þær tekjur minnkuðu, af ástæðum sem mönnum gætu nú verið kunnar eftir umræðurnar í dag, mundi hann beita sér fyrir því að SÁÁ fengi tekjur í þess stað af fjárlögum?